Þá er maður komin heim úr einhverri athyglisverðustu ferð sem ég
hef nokkurn tíma farið í! Ótrúlega skemmtileg, en full margar
uppákomur sem hefðu mátt fara ögn betur að mínu mati! Kvarta samt
ekki! Gott fólk, góður bjór og góð tónlist! Lífið er eintómt
lotterí heheh
Mánudagur 2/7
Áður en kvartanirnar byrja þá er stórfrétt þessa dags
tvímælanlaust að Elín Auður vinkona mín og Tommi hennar
eignuðust krúttlega lubbalínu!
Vaknaði snemma og Björk kom og við drifum okkur á flugvöllinn.
Vorum mættar klukkan hálf 8 rúmlega og fór í gegnum vopnaleit og
var afvopnuð af Victoria Secret ilmvatninu mínu! Ekki alls kostar
hress með það en skilningurinn í hámarki þar sem ilmvötn eru eins
og alþjóð veit stórhættulegt fyrirbæri sem ber að varast fram í
lengstu lög.
Nú tóku við endalausar biðir..... fengum aldrei neinar upplýsingar
af hverju en biðirnar lengdust og lengdust án nokkurra útskýringa í
rauninni að manni fannst..... Til að gera heiftarlega langa sögu
stutta þá seinkaðist flugið um 12 tíma og ég get ekki sagt að ég
mæli með því að fljúga með Iceland Express............... ég geri
mér fulla grein fyrir því að förstöðumenn þar ráða ekki veðri og
vindum en give me a break með lélegt upplýsingaflæði!....
Vorum komin í íbúðina í kringum 4 að dönskum tíma og
steinrotuðumst. Skutum skjólshúsi yfir Katrínu, Katrínu og Rakel
sem voru alveg lost um miðja nótt enda var planið að vera komin 12
klt fyrr!!!!!!!!!!!
Þriðjudagur 3/7
Þessi dagur var bara gleði og hamingja! Ég og Björk fórum og
versluðum og versluðum! Keypti mér 2 kjóla og 2 boli og 1
peysu..... keypti svo smá á Chris og Þóri líka! Hef aldrei áður
keypt gjöf handa kæarsta í útlöndum svo það var gaman!!!! Veskinu
mínu var samt stolið...... EN skilað svo aftur, peningalausu að
vísu, en með öll kort óhreyfð, svo ég nenniekki að væla yfir því!

Eftir að hafa slefað yfir dyraverðinum á Hard Rock fórum við heim
og í fínu fötin og þaðan rakleðis að drekka kokteila! hehe Næstum
fancy wedesday.... nema það var ekki miðvikudagur!
Miðvikudagur 4/7
Vöknuðum um hádegi og skelltum okkur af stað til Hróarskeldu með
allt okkar hafurtask..... ferðin frá íbúðinni og á Hróarskeldu tók
ca 5 tíma.... og maður var að verða djöfulli pirraður, en þetta
hafðist allt að lokum.... Þegar við komum á svæðið var bara DRULLA
alls staðar! maður er örugglega búin að missa nokkur kíló á því að
vaða í þessum viðbjóði á hverjum einasta degi! En á þessum degi var
vatnsmagnið ekki svo skelfilegt.... eiginlega bara leðja.. en um
kvöldið fór svo að rigna soldið...... Við Björk skemmtum okkur
afspyrnu vel þetta kvöld! Hittum mann sem heitir Skinke og hann er
stórfurðulegur og hélt því fram að ég hefði myrt Kurt Cobain.... en
ég er algjörlega saklaus af þeim ásökunum! Við sofnuðum glaðar í
þurru tjaldi með bros á vör!
Fimtudagurin 5/7
Nú byrjaði að rigna....og rigna og rigna og rigna og rigna eins
og hellt væri úr fötu! Við héngum bara á tjaldstæðinu og fórum svo
á stt hvora tónleikana, ég á Volbeat með Filip vini mínum og Björk
skellti sér á Arcade Fire. volbeat voru bara þó nokkuð góðir,
reyndar kannaðist ég doldið við þá síðan ég var í skólanum og
fannst þeir reyndar ekkert spes þegar var verið að spila þá fyrir
mig en það var allavega gaman að sjá þá Live! Þetta kvöld var líka
kvöldið þar sem bjórinn kláraðist ekki.... hann varð bara þynnri og
þynnri sökum rigningar! hehe Seinna sama dag fórum við svo á
að horfa á löndu okkar og nöfnu annarrar, hana Björk. Við urðum
samt viðskila og horfðum í sitthvoru lagi hvorug með nokkurn
félagsskap.... en við sköpuðum miklar vinsældir itt í hvoru lagi að
vera Íslendingar.... Björk þó meira af augljósum ástæðum. Þegar við
komum inn í tjaldið sem var með 2 "herbergjum" var okkar "herbergi"
alveg á floti en við létum okkur hafaða og sofnuðum í þessari
gleði! vöknuðum samt snemma með rúsínulíkama og forum hinum megin í
tjaldið þar sem ábúandinn þar var ekki viðstaddur!
Föstudagur 6/7
Skemmdir metnar..... svefnpokar, dýnur og flest allur klæðnaður
hafði ekki sloppið. Einnig drukknaði síminn hennar Bjarkar.
Vegabréfið mitt hafði tekið sundsprett og peningar höfðu nánast
leyst upp. En við ákváðum að láta þetta ekki á okkur fá og fórum út
í stórfljótin sem tóku þá við..... en það rigndi ekkert svo
brjálæðislega þennan dag. Klósettin voru vibjóður og rosalega
erfitt að fá sig til að fara á þau, semer damt erfitt fyrir
manneskju með bladder-vandamál eins og ég... en mín bladder heldur
bara svona ca. einum bjór! punktur! Við hittum svo Gunna vin
Bjarkar og Halla vin hans, en hann er kæfuruglaður náungi
Þennan dag sá ég síðan:
- My Cemical Romance - mér fannst þeir ekkert ólýsanlega góðir,
en þeir voru samt alveg ágætir.. þar byrjaði ég að þamba bjór......
með meðfylgjandi klósettferðum
- Beastie boys - þeir voru reynar alveg óóógeðslega skemmtilegir
fannst mér! Maður einhvern veginn kann öll lögin og svo var þessi
Halli sem var með okkur einhver gallharðasti aðdáandi í heimi og
það er svo gaman a hafa einhvern sem er alveg að fá aðsvif af
gleði!
Bjórþamb hélt áfram.......... Óóóóógeðslega gaman!
- Queens of Stoneage - þarna ofmetnaðist ég og skellti mér
fremst, þekkti ekkert til þessarar tónlistar og bjóst ekki við því
sem síðan gerðist. Turnamennirnir í kringum mig fóru að hoppa og
skoppa og fyrstu 4-5 lögin fóru í það hjá mér að halda mér á
löppum. Í lagi 6 ca. þá gat ég ekki meir og datt og nokkrir ungir
sveinar stigu trylltan dans á bringunni á mér ...............
þannig að ég fikraði mig að girðingunni og spurði kurteislega hvar
ég kæmist út úr þesu lifandi helvíti. Þá kom hálfgerður
panikk-geðisvipur á andlit konunnar sem var klædd í appelsínugult
vestiog hún hóaði saman fólk sem síðan "bjargaði mér" Þarna stóð ég
svo á miðjunni, beint fyrir framan sviðið og horfði á tónleikana
þar! Best að láta bjarga sér bara! hehehe....
Ég ætlaði mér svo að fara á Nephew um kvelið en ég hafði ekki
orku í það og fór bara að lúlla mér í góðum fíling!
Laugardagur 7/7
Mest bara rölt um svæðið og chill á tjaldsvæðinu! Tjaldið okkar
var eins nálægt Arena sviðinu og hægt var að tjalda svo maður
heyrði allt sem þar fór fram!!!!!!! Machine head er t.d. mjög kósý
hljómsveit sem er gott að hlusta á í þynnkunni!
Ég og Björk og Nýju vinir okkar löbbuðum svo bara um að drekka bjór
og slappa af í Lounge, sem er mjög afslappaður staður þa sem
eralltaf eitthvað að gerast, dj eða róleg tónlist eða eitthvað! Við
urðum svo viðskila og ég horfði með strákunum á "THE WHO" sem voru
ógeðslega skemmtilegir! skemmti mér alveg hreint konunglega að
horfa á þá .......... og ekki voru RED HOT CHILLI PEPPERS verri....
hehe Það voru ekki allir ánægðir með þett en Björk fannst þetta
geggjðir tónleikar og mér reyndar líka, en ég var samt þó ekki jafn
uppnumin og Hólmarinn sem lét hafa eftir sér að þó þeir hefðu ropað
í mígrfóninn hefði hún fengið aðsvif! Djamm djamm djamm once
again!
Hápunktur dagsins:
STURTA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Sunnudagurinn 8/7
Rigndi ekkert............ þvílík blíða og gaman! Við Björk
drukkum ekki dropa af áfengi og röltum bara um svæðið í góðu skapi
að skoða í búðarbásunum, fórum á the Ark sem voru fyrir Svíþjóð í
Júróvsjón og þeir voru agalega góðir! stóðum og dilluðum okkur með
agalega góðan ís í annarri og sungum með
síðan fórum við á Alpha
Blondie sem er geðveik hljómsveit frá Fílabeisströndinni... spila
reggae og við láum bara o hlusuðum........ ég brann.... skaðbrann í
framan og er núna að flagna í framan! (glæsó)..... Svo var það
Artic Moneys sem voru aaaaagalega góðir og svo glaðir og
skemmtilegir! Þar fundum vð Björk mestu svitafílu í heimi af
ofurkátum Breta! og að lokum var það
MUSE!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! þeir voru REYNDAR
geeeððððveikir!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
ég nenni ekki að segja frá ferðinni heim en hún gekk bara
vel
Þetta var frábær ferð og takk björk mín fyrir drulluga en
skemmtlega viku!
ég er komin heim....... en er að fara suður um helgina í boði
Chris!
kossar á línuna